Hafa samband

KGB Tours
Mosbarði 14, 220 Hafnarfjörður
Sími: +354 554-1827
og +354 899-1295
Netfang: kgb@kgbtours.is

Banner
Ástralía PDF Print E-mail
Written by Administrator   
Tuesday, 23 March 2010 16:33

Í október 2012 og desember 2012:

Dagur 1 og 2: Flug Keflavík-London -Singapore -Brisbane
Dagur 3: Frjáls dagur í Brisbane. Gisting á hóteli rétt við miðbæinn, svo að stutt er í búðir, veitingastaði,  spilavíti o.fl.
Dagur 4: Ekið frá Brisbane til Hervey Bay (um 3 tímar). Þaðan siglt í um 45 mín. út í Fraser Island þar sem við munum gista í þrjár nætur. Eyjan er stærsti sandskafl í heimi, þétt gróin frá hæstu hæðum niður að strönd og er á heimsminjaskrá UNESCO. Þar er að finna tær vötn, margs konar fallegar plöntur og fjölbreytt dýralíf.  Hér gefst kostur á skoðunarferð um eynna með leiðsögn, sigla á kanó eða ganga um nágrennið, fyrirlestur um dingohundana og ýmislegt fleira sem boðið er upp á á þessari einstöku eyju. Við hótelið er góður aðbúnaður m.a. veitingastaðir, barir og sundlaug í hótelgarðinum. Að auki eru aðrir veitingastaðir, sem fólk getur valið um.
Dagur 7: Ferjan tekin frá Fraser Island til Hervey Bay, ekið þaðan til Noosa (um 3 tímar).
Dagur 8: Noosa. Fallegur lítill strandbær. Þar gist aðrar þrjár nætur. Hér er boðið upp á afslöppun á strönd, kíkja í búðir eða göngu í þjóðgarð, sem er nánast við bæjardyrnar. Í garðinum lifa kóalabirnir í sínu eðlilega umhverfi og algengt er að sjá höfrunga synda úti fyrir ströndinni. Mögulegt fyrir þá sem vilja að fara í siglingu upp Noosa river og sjá m.a. hvar fyrstu hvítu landnemarnir byggðu sér heimili. Sigling upp þessa á er mikil upplifun í einstaklega fallegu umhverfi. 
Dagur 10: Farið að morgni frá Noosa til Brisbane (ca tveggja tíma akstur). Hér gefst kostur á ferð um Brisbane með leiðsögn (hop on /off). Ekið  um borgina, ýmsir áhugaverðir staðir skoðaðir. Einnig verður farið með City Cat og ýmsir staðir skoðaðir á þeirri leið. Gist í Brisbane það sem eftir er ferðar.
Dagur 11: Ferð frá Brisbane í Lamington þjóðgarðinn sem er einstaklega fallegur staður og er á heimsminjaskrá UNESCO. Þar er m.a. að finna regnskóg, tré sem er holt að innan og litríka páfagauka. Þar er einnig  hengibrú sem gaman er að ganga eftir, 180 m löng og í 25 m hæð efst í trjátoppunum. Í þessari ferð er einnig komið við á O’Reilley’s vínbúgarðinum, vínsmökkun, ef fólk vill. 
Dagur 12: Síðasti dagurinn og getur hver og einn notað hann að vild, en benda má á að gaman er að heimsækja hinn fræga dýragarð Australian zoo þar sem hinn þekkti Crocodile Hunter átti heima. Þar er m.a að finna kengúrur, kóalabirni, risaskjaldbökur, krókódíla og önnur dýr, sem við höfum ekki fyrir augunum á hverjum degi, jafnvel hlæjandi fugla. 
Dagur 13: Flug frá Brisbane með millilendingu í Singapore-London og áfram til Keflavíkur

KGB tours áskilur sér rétt til að fella niður þessa ferð náist ekki að lágmarki 10 manns.

Innifalið í verði: Flug og skattar,Vísa ásamt allri gistingu m/morgunmat, akstur og ferja í Ástralíu. Íslensk fararstjórn.

Ekki innifalið í verði: Hádegisverður, kvöldverður eða drykkir, veitingar í ferju. Skoðunarferðir um Fraser Island, sigling á kanó, vínsmökkun. Hop on/off í Brisbane, sigling um Noosa river. Annað sem ekki er nefnt að sé innifalið.  

Verð kr. 626.330 á mann miðað við tvo í herbergi.
Verð eru með fyrirvara um skatta- og gengisbreytingar og miðast við gengi AU $ þ. 19.1.2011
Verð ferðar breytist ekki eftir að hún hefur verið að fullu greidd.

Last Updated on Tuesday, 17 January 2012 12:59